20. janúar 2007 klukkan 01:48
Það eru komnar nokkrar myndir frá ballinu... það var nýjársball í gær á broadway.. gegghaððð stuðð .. hef aldrei skemmt mér eins vel á ballii... dansað af sér rassinn skoo.. úlallalalalalalala.. en ég setti ekkir allar myndirna inn.. en þarna eru nokkrar skemmtilegar.. set hinar inn seinna..:Þ
En í kvöld er það booka shade..á gauknum.. verður stiginn trylltur dans.. og það verður mergjað stuððð ekki spurning!!! aaaaaa..
Svoooo er það AKUREYRI helgina 16. feb.. Elín ástin á afmæli þann 11 og ætlar að halda upp á það helgina eftir.. sem þýðir það að ég kemst líka í afmælið hennar lílju minnar sem á afmæli þann 10...
en það verður gaman að hitta elskurnar mínar á akureyri ... það er svo langt síðan ég sá þær.. og gott að komast í burtu frá öllu þessu stressrugli í reykjavíkinni.... heh
en ég hvet alla til að skoða myndirnar..
pece out Anna $
Anna Pálsdóttir
14. janúar 2007 klukkan 04:49
Lífið er eins og eins og einn stór, lykkjóttur og hlykkjóttur rússíbani.. stundum leikur allt í lyndi og svo á sekúndu breytist allt... einn daginn er maður hamingjusamur og svo næsta óhamingjusamur og leiður.. en svona er víst lífið, enginn dans á rósum eins og sumir segja..
Ég er mikið búin að vera að pæla undanfarið í hvað fellst í orðinu "hamingja" þýðir það að manni líður vel eða að maður eigi góða fjölskyldu og vini eða að maður eigi góðan lífsförunaut..? snýst hamingjan um ást og kærleika eða velgengni? veit maður hvenær maður er hamingjusamur eða er maður það án þess að vita það með vissu... ég hef oft heyrt að hamingjan felist ekki í peningum og ég skil þá pælingu hjá fólki vel.. þýðir það þá að allt ríka fólkið sé óhamingjusamt.. nei... málið er að ég held að hamingja snúist um það að eiga maka sem manni líður vel með og treystir og ef til vill börn.. er maður þá hamingjusamur.. ? ef maður á mann og börn og hús og er í góðri vinnu, fær góðar tekjur og á góða og trausta vini, er maður þá hamingjusamur.. er það sú hamingja sem lífið hefur upp á að bjóða..? er það sú hamingja sem allir eru að eltast við?
"Ást" er það eitthvað sem getur endst alla ævi eða er það bara tímabil sem allir ganga í gegnum, að vera ástfangir.. eða bara tími sem líður svo hjá? ég veit vel að maður getur elskað fjölskyldu sína og vini, og ég geri það, en getur maður elskað eina manneskju allt sitt líf.. hvað sem á gengur?? það vil ég vita.. getur maður vaknað á hverjum morgni við hliðina á einhverjum og hugsað með sér " vá hvað er er heppin, ég er svo hrifin og ástfangin af þessari mannesku að ég get ekki hugsað mér lífið á hennar" hugsar einhver svona..? ég hef mikið verið að pæla í einu öðru(Svolítið mikið af pælingum í þessari færslu) og það er að oft eltist fólk alla ævi við þessa svokölluðu "hamingju" en öðlast hana aldrei... er þá málið að ef maður leitar ekki kemur hún til manns... eins og sagt er að þegar maður er ekki að leita af kærasta/kærustu þá birtist hún/hann...?
Jæja mikið í gangi í heilanum á mér núna .. ehh .. en langaði að deila þessu með ykkur fáu sem lesa eitthvað á þessari blessuðu síðu.. hehe ..
ennn pece out Anna $.
Anna Pálsdóttir
12. janúar 2007 klukkan 03:31
Þessar fjandans útsölur.. ég þoli ekki útsölur, þær eru eintómt peningaplokk og rugl..
Ég fór á útsölur áðan með mömmu og sigrúnu í kringlunni.. vá það var sko 2fyrir1 af vörum og svo 70% afsláttur af þeirri vöru, s.s. þú kaupir skó á 70% afslætti og svo færðu eitt frítt par með.. góður díll .. hver dettur ekki í þessa grifju að kaupa sér tvö pör af skóm og borga kannski 2000kall... úfff.. allavega keypti ég mér kjól, bol og veski áðan... kostaði mig 7000kall eða e-ð.. en ég kom heim með blendnar tilfinningar.. ég var bæði með geggjað samviskubit að hafa eitt þessum djöfulsinns 7000kalli .. en aftur á móti var ég sátt með að hafa eignast nýjann kjól,hann er svona grænn silkikjóll, sem ég get farið í á ballið 18.jan.. og svo eignaðist ég bol sem var mjög flottur, gylltur, og eldrautt veski.. geggjað.... þannig að þessi ferð kallaði fram blendnar tilfinningar.. útsölur kalla fram blendnar tilfinningar..
pece out Anna $... útsöluekkiaðdáandi
Anna Pálsdóttir
28. desember 2006 klukkan 00:43
Sorgarfréttir
Mig langaði að segja ykkur frá því að hún amma mín Hildur Sólveig Þorbjarnardóttir, mamma mömmu, dó að morgni aðfangadags eða þann 24.des síðastliðinn. Svo þessi aðfangadagur var mjög frábrugðin öðrum og erfiður dagur. En hún dó þó á fæðingardegi frelsarans, en hennar verður sárt saknað.
Það er samt fyndið hvað maður verður sjálfselskur þegar fólk deyr, amma var mjög veik, fékk kransaæðastiflu og svo lungnabólgu ofaní það, henni var svo gefið morfín á fjörga tima fresti og var hún í móki vegna þess. Þetta var ekki það sem amma hefði viljað, vera svona veik og hjálparvana, því var sjálfstæðasta manneskja sem ég þekki og mun þekkja, hún hefði aldrei vilja vera byrði og svona hrikalega veik. En já ég var að tala um sjálfselskuna í fólki, ég var alltaf að vonast til þess að hún gæti harkað þetta af sér svo að ég gæti notið hennar lengur en auðvitað var það að hún fengi að deyja það besta sem gat gerst í hennar stöðu, hverskona líf er það að vera rúmföst í morfínmóki með súrefni í nösum..? það vill enginn, en mig langaði að hún myndi lifa því ég vildi ekki missa hana.
Ég var nú svo óheppin að missa hina ömmu mína í apríl á þessu ári og ég gat ekki hugsað mér að ganga í gegnum þetta hrikalega sorgarferli aftur... en svona er lífið það skiptast á líf og dauði og skin og skúrir...og ég veit að amma var ekki hrædd við dauðan hún vissi að hún fengi góðar móttökur og að hún hefði ekkert að hræðast...
en þó að amma sé farin gleymir maður henni ekki og minning hennar lifir í hjörtum okkar allra sem þekktu hana, þó að hennar sé sárt saknað.
kv. Anna Sigga
Anna Pálsdóttir
24. desember 2006 klukkan 05:51
Nú líður að jólum en þetta verða nú ekki skemmtileg jól hjá minni fjölskyldi, amma mín liggur í dauðadái á spítala eftir að hafa fengið kransaæðastíflu og svo lungnabólgu ofaní það... og læknarnir segja að það sé ekki langt eftir... þannig að ég er ekki neinu jólaskapi og finnst engu að fagna..
En ég er reyndar búin að kaupa allar jólagjafirnar þó ekki mætti seinna vera...og búið er að skreyta allt og þrífa og þurrka af og búið að sjóða hangikjötið og skreyta jólatréið og ég gæti haldir svona áfram en ég nenni því ek...
En smá svona skemmtódæmi..... versegú
1. Hvað kallarðu mig?
2. Hefurðu heyrt mig syngja, ef svo er hvernig hljómaði ég?
3. Hvað á ég eftir að vera að gera á týpísku laugardagskvöldi eftir tvö ár?
4. Þegar þú hugsar um mig, hvaða tvö lög dettur þér fyrst í hug?
5. Ef þú þekktir mig ekki, og mættir mér einhverstaðar, myndirðu halda að ég væri á lausu eða föstu?
6. Þegar þú hugsar til mín hvaða fimm hlutir detta þér fyrst í hug?
7. Hvernig sérðu mig fyrir þér í hljómsveit? Á hvað myndi ég spila?
8. Hvað erum við mörg í fjölskyldunni?
9. Hver er uppáhalds söngkonan/söngvarinn minn?
10. Hvaða lag minnir þig mikið á mig?
11. Hversu vel telurðu þig þekkja mig?
12. Hvernig stráka fíla ég?
13. Hvað geri ég oftast þegar ég á frítíma?
14. Hvað er mest einkennandi við mig?
15. Hef ég einhverja fíkn?
pece out Anna $
Anna Pálsdóttir
21. desember 2006 klukkan 07:54
Bloggbloggbloggblogg...jájá
Það eru komnar nokkrar nýjar myndir.. það finnst öllum gaman að skoða myndir, nema þeim sem eru skrítnir...
Jæja jólin eftir 4 daga eða eiginlega þrjá því klukkan er yfir tólf... og á jólunum fæ ég gott að éta og pakka,þó þeir verði nú ekki margir í ár... hehe jólin hjá önnusiggu í hnotskurn: éta pakkar sofa... jeesss hlakka til...:) og svo auðvitað þetta saman rugl *eyða tíma með vinum og fjölskyldu* blabla.. eitthvað sem maður gerir alla daga alltaf...
En klukkan er margt og ég ætla að sofa.... eeeeendilega skoðiðiðiðiðiði myndirnar og njótið því ég tek þær fljótlega af síðunni vegna þess að maður hefur bara ákv mikilð pláss og ég þarf að taka þær til þess að geta sett nýjar.. vá flókið .... eeeeeennn
en vá hvað þetta er eitthvað kaldhæðið blogg... sóvot
pece out Anna $
Anna Pálsdóttir
20. desember 2006 klukkan 05:16
Jæja vá ég ætla að láta reyna á þetta bloggkjaftæði aftur... nú er ég komin í jólafrí og svonna þannig að ég hef meiri tíma núna... ehhh *afsakannir* hehe já ég skil samt ekki þetta blogg dæmi... þúst hver hefur gaman að lesa um hvað ég geri á daginn.. eða hvernig ég hitti eða e-ð um mig...... ? Allavega þegar ég les blogg finnst mér leiðinlegt að lesa blogg sem eru svona: Í dag vaknaði ég og fór í skólann, svo hitti ég blabla og fór í kringluna... og blablablabla
Sorry þið sem eruð með svona blogg, ekki taka þetta persónulega.. hehe okeiiiii ég er komin í rugliðð... heh
En svo fann ég svona skemmtilegt inn á síðunni hennar Elínar... því ég veit að allir elska að gera svona...*right* :
1. Miðnafnið þitt:
2. Aldur:
3.Single Or Taken:
4.Uppáhaldsbíómynd:
5. Uppáhaldslag:
6.Tattoo eða göt:
7. Þekkjumst við persónulega:
8.Hver er tilgangurinn með lífinu:
9.Besta minning þín um okkur:
10.Myndiru hugsa um mig ef ég væri veik:
11.Hefuru heyrt kjaftasögu um mig nýlega:
12.Finnst þér ég góð manneskja:
13.Myndiru keyra með mér hringinn í kringum landið:
14.Finnst þér ég aðlaðandi:
15.Hverju myndiru vilja breyta í mínu fari:
16. Í hverju sefuru:
17.Kæmiru í heimsókn af tilefnislausu, bara til að chilla:
18.Myndiru koma á deit ef ég myndi bjóða þér:
19. Ef ég ætti einn dag ólifaðan, hvað myndum við gera:
pece out... Anna $.
Anna Pálsdóttir